Þunglyndi og kvíði
Þunglyndi er alvarlegur sjúkdómur
sem getur lagst á alla. Þá meina ég allir geta orðið þunglyndir!
Mig langaði aðeins til að tala um
þunglyndi og kvíðaröskun því ég berst við þessa sjúkdóma. Og langaði aðeins að
peppa fólk sem er með þetta líka eða ekki.
Mér finnst oft fólk mynda sér neikvæða mynd á
þunglyndis og kvíðasjúklinga. Og sérstaklega þegar er talað um fólk sem þarf að
leita sér hjálpar á geðdeildum eins og það er kallað. Og sumir hafa sína mynd á
geðdeildum eins og er í sumum bíómyndum, Fólk stjórnlaust í spennutreygju? Ee nei
alls ekki rétt...
Ef þú ert með þunglyndi þá þarftu
ekkert að skammast þín fyrir það.. þetta
er eins og hver annars sjúkdómur. Enginn velur sér það að næla sér í eitt
stykki þunglyndi hvað þá einhvern annan sjúkdóm. , sumir líta á fólk með
þunglyndi sem eitthverja aumingja og þetta sé ekkert annað en aumingjaskapur. En
nei það er ekki raunin. Það er ekkert að því að fara til sálfræðings og fá
hjálp á vandamálum sínum, það er alveg eins og að fara til heimilslæknis og fá
lækningu við kvefi eða eyrnabólgu eða eitthvað álíka.
Það sem hjálpaði mér mikið við að
takast á við mínu þunglyndi og kvíða var t.d að hætta að drekka áfengi!! Áfengið
hjálpaði mér nákvæmlega ekkert og ef ég t.d tæki hérna eitt djamm á föstudegi
þá veit ég aldrei hvort að þunglyndið og kvíðinn stingi í bakið á mér í
kjölfarið það er að segja dagana eftir djammið. Þá get ég verið veik heima hjá
mér í jafnvel tvær vikur með endalausar kvíðahugsanir og þunglyndið og ég verð
svona eins og ég sé dofin. Ég er mjög hress stelpa og þegar ég fer í þunglyndiskast
er eins og það slökkt á off takkanum á Sædísi sem allir vinir mínir þekkja mig
sem hressa og fjöruga, en þá er eins og það bara slökkni á öllum góðum
tilfinningum og mér langar ekkert til þess að fara út með vinum og treysti mér
varla í vinnuna og ég kvíði öllu og hausinn á mér fer í rússíbana á endalausum
áhyggjum og hugsunum sem snúast í hring
eftir hring og ég næ varla að stoppa og á erfitt með svefn og matarlyst. Þó mig
langi auðvitað rosalega mikið til þess að sofa eðlilega og borða.
Ég er núna ekki búin að drekka
síðan 6 . oktober 2012 og er ég svo ánægð með lífið! Og sjálfan mig að hafa
hætt að skemma fyrir sjálfri mér með drykkjunni ! hef ekkert farið í þunglyndis
né kvíðakast síðan og ég kann algjörlega að skemmta mér edrú. Og mér finnst
mjög gaman að fara niðrí bæ og dansa og fíflast með vinkonunum þó ég sé edrú. Enda
er ég svo hress fyrir að ég þarf ekki áfengi til þess að hressa mig við
Annað sem hjálpaði mér mjög mikið
við að ná tökum á þunglyndi og kvíðanum og sigrast á þessu var að fara á dale
carnigie námskeið. Það hjálpaði mér svo mikið og ég alveg blómstraði á þessu
námskeiði og kynntist æðislegu fólki sem var jafnvel í sömu sporum og ég . og
smá mont hérna þá hlaut ég æðstu viðurkenninguna sem er hægt að fá á þessu
námskeiði þar sem allur hópurinn kaus þann sem þeim fannst eiga mest skilið að
fá þessa viðurkenningu. Og þó það kosti kanski smáá pening að fara á þetta
námskeið þá er það algjöööörlega þess virði! Og þetta er fyrir fólk á öllum
aldri og fyrir alla. Það hafa allir gott á því að fara á Dale námskeið. Það mun
bara gera þér gott :).
Hérna fyrir neðan er smá sem ég
fann á netinu á ýmsum síðum um einkenni þunglyndis
Depurð, vonleysi og hjálparleysi
Tárast títt og auðveldlega
Minni ánægja með lífið, nýtur ekki lífsins
Minni áhugi á athöfnum og áhugamálum sem áður veittu ánægju
Svefntruflanir og sofið mikið
Minnkuð eða aukin matarlyst
Vanmáttarkennd og sektarkennd
Þreyta eða slen
Kvíði eða pirringur
Hæg
hugsun
Minni áhugi á kynlífi
Ofurviðkvæmni
Slök einbeiting, minni og áhugahvöt
Miklar líkamlegar umkvartanir
Sjálfsvígshugsanir
Vona að þessi grein mín hafi verið
ykkur gagnleg, Áfram þið! Og lærið að
elska ykkur eins og þið eruð
því þið eruð frábær "just the way you are" ;)
pís out xoxo Sædís Eir
ég með viðurkenninguna eftir Dale Carnigie námskeiðið
mynd eftir Karólínu Hrönn vinkonu mína :)
mér finnst þessi mynd æðisleg og sýna svo mikið frelsi. vertu frjáls í líkamanum þínum og sýndu þinn frábæra persónuleika :) og ekki gleyma að vera þú sjálf/ur og njóta lífsins!